Pubquiz
mánudagar
Viltu þenja minnistaugarnar? Nýta gagnlitla þekkingu? Við erum með Pubquiz alla mánudaga kl 20:00. Keppnin er á ensku og opin öllum. Hámark fjórir í liði. Mætið tímanlega.
Martini
miðvikudagar
Hrærður en ekki hristur Dry Martini á tilboði alla miðvikudaga til lokunar, auk minni spámanna í martini fjölskyldunni. Espresso Martini, Dry Martini, Dirty Martini og Pornstar Martini. Allt saman á einungis 2.500 kr glasið til lokunar.
Freyðivíns
fimmtudagar
Prosecco og Prosecco rosé á 1.300 kr, Cava á 1.500 og Crémant á 1.700 alla fimmtudaga til lokunar. Leyfðu loftbólunum að lyfta þér upp á æðra plan.
Happy hour
Alla daga frá 16:00-18:00 Bjór á 1.100 og húsvín á 1.300 kr.
Gjafabréf
Gjafabréf á Bodega er ávísun á góða kvöldstund þar sem metnaðarfullir vertar leggja áherslu á huggulega stemningu við undirleik eðalvíns, kokteila og ljúffengra léttra rétta.
Samstarf við Ölvisholt
Bodega lite
Allir íslenskir bjórar sem við bjóðum upp á á krana eru frá hinu frábæra brugghúsi Ölvisholti. Einn af þeim er, stoltið okkar: sérbruggaður, glúteinlaus, laufléttur, brakandi ferskur og heitir einfaldlega Bodega Lite.
